Já þann 5. september árið 1981 var dýrðar dagur því þá eignuðust Bandaríkjamenn eina sína ástsælustu söngkonu og um leið við Íslendingar einn af okkar dáðustu drengjum í körfunni. Logi Gunnarsson og Beyonce Knowles deila þessum afmælisdegi í dag og fagna þau bæði 36 ára afmæli. Á meðan sönghæfileikar fóru í vögguna hjá Beyonce fékk Logi Gunnarsson körfuknattleik í sínar fingur. Óvitað er hvernig Jay Z muni halda uppá daginn með sinni elsku en Birna Þorkelsdóttir, eiginkona Loga verður í stúkunni að öskra sinn mann áfram.
Karfan.is yrði illa svikinn ef ekki yrði tekinn afmælissöngur fyrir Loga í dag. Muna að njódda og livvva. Áfram Ísland.