Tryggvi Snær Hlinason, miðherjinn efnilegi, er mættur til Spánar og farinn að hefja æfingar með Valencia körfuboltaliðinu í efstu deild á Spáni. Valencia birtir mynd af Tryggva á Twitter að því tilefni í dag og má með sanni segja að drengurinn líti fantavel út í appelsínugulu. Með myndinni segir að Tryggvi sé fyrstur til að mæta eftir Eurobasket.
Tryggvi átti fína innkomu á sínu fyrsta stórmóti með A-landsliðinu í Helsinki með rúmlega 4 stig og um 3 fráköst á aðeins 11 mínútum. Tryggvi var einnig drjúgur í varnarleik liðsins með varið skot og breyttir ótal fleirum auk þess að stela 3 boltum í keppninni.
_x1f44b_ ¡Bienvenido!
El primero en llegar desde el Eurobasket, el islandés Tryggvi Hlinason se une al grupo. ¡Bienvenido a la #FamiliaTaronja! pic.twitter.com/E1QGGJFEra— Valencia Basket Club (@valenciabasket) September 12, 2017