"Mitt uppeldisfélag var mér alltaf efst í huga þegar ákvörðun var tekin að koma heim. Ákvörðunin var þannig séð í raun auðveld og lítið annað sem kom til greina þó svo að vissulega hafi ég hlustað á tilboð frá öðrum liðum." sagði Kristinn Pálsson sem í dag komst að samkomulagi við Njarðvíkinga að leika með liðinu út leiktíðina og aukinheldur næstu tvö tímabil.
Kristinn er uppalinn í Njarðvík en um 15 ára aldur fór hann til unglingaliðs Stella á Ítalíu til náms þar sem hann spilaði með liði þeirra við góðan orðstýr og var meðal annars fyrirliði liðsins. Þaðan fór hann svo til Marist háskólans þar sem hann hefur dvalið við nám síðustu 2 og hálft árið. Kristinn var í æfingahóp A-landsliðsins á síðasta ári og hefur verið viðloðandi þar síðastliðið árið.
"Ég er auðvitað í skýjunum að vera komin heim til Njarðvíkur og hlakka til að byrja með liðinu. Vonandi næ ég að styrkja hópinn og aðstoða liðið í vetur en sem fyrr eru gerðar kröfur í Njarðvík og þetta verður bara skemmtilegt." sagði Kristinn að auki.