spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karla33% líkur á að Tindastóll verði Íslandsmeistarar

33% líkur á að Tindastóll verði Íslandsmeistarar

 

Verður Tindastóll Íslandsmeistari? Það er svosem aldrei að vita. Einhverja tölfræði er þó mögulega hægt að fá út úr stöðu liða yfir áramótin. 3 lið af 9 sem hafa verið á toppi deildarinnar yfir hátíðarnar síðustu 12 ár hafa náð að klára tímabilið með sigri á þeim stóra, eða 33.3%.

 

Það virðist því algjörlega uppi í loftinu hvort að lið Tindastóll nái að tryggja sér þann stóra, eða ekki? Í raun líklegra að þeir geri það ekki, en liðið er sem stendur á toppi deildarinnar eftir 11 umferðir með 10 sigurleiki og 1 tap, með betri innbyrðisstöðu heldur en Njarðvík, sem er jafnt þeim að stigum.

 

Hérna er staðan í deildinni

 

 

2009-2010

Efsta lið deildar um jól Stjarnan

Íslandsmeistarar Snæfell

 

2010-2011

Efsta lið deildar um jól Snæfell 

Íslandsmeistarar KR

 

2011-2012

Efsta lið deildar um jól Grindavík 

Íslandsmeistarar Grindavík

 

2012-2013

Efsta lið deildar um jól Þór Þorlákshöfn

Íslandsmeistarar Grindavík

 

2013-2014

Efsta lið deildar um jól KR

Íslandsmeistarar KR

 

2014-2015

Efsta lið deildar um jól KR 

Íslandsmeistarar KR

 

2015-2016

Efsta lið deildar um jól Keflavík

Íslandsmeistarar KR

 

2016-2017

Efsta lið deildar um jól Tindastóll

Íslandsmeistarar KR

 

2017-2018

Efsta lið deildar um jól Haukar

Íslandsmeistarar KR

 

2018-2019

Efsta lið deildar um jól Tindastóll

Íslandsmeistarar ???

Fréttir
- Auglýsing -