Lykilleikmaður 11. umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður Keflavíkur, Brittanny Dinkins. Í nokkuð öruggum sigri Keflavíkur á Íslandsmeisturum Hauka skilaði Dinkins 34 stigum, tók 10 fráköst, gaf 11 stoðsendingar og stal 5 boltum á um 34 mínútum spiluðum.
Aðrar tilnefndar voru leikmaður Vals, Heather Butler, leikmaður Stjörnunnar, Danielle Rodriguez og leikmaður Snæfells, Kristen McCarthy.
Lykilleikmaður 11. umferðar Dominos deildar kvenna? #Korfubolti
— Karfan (@Karfan_is) December 8, 2018