Hið árlega Póstmót Breiðabliks fer fram helgina 26.-27. janúar næstkomandi.
Mótið er fyrir iðkendur, stráka og stelpur, á aldrinum 6-9 ára en keppt er í 4 aldursflokkum og fer mótið fram í Smáranum. Stig eru ekki talin og verður leikgleðin í fyrirrúmi og allir fá verðlaunapening, eftir að leikjum lýkur á laugardeginum verður boðið uppá troðslusýningu og tónlistaratriði. Einnig verða teknar liðsmyndir af öllum liðum sem hægt verður að sækja endurgjaldslaust.
Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 18. janúar en skráningar skilast á netfangið [email protected], taka þarf fram fjölda liða, fjölda iðkanda í hverju liði, kyn og aldur. Þátttökugjald er 3500 kr. á iðkanda.
Mótsreglur:
· Leiktími er 1×12 mínútur
· 3 leikmenn eru inn á í hvoru liði hjá 1-2 bekk
· 4 leikmenn eru inn á í hvoru liði hjá 3-4 bekk
· Skipta má inn á hvenær sem er á leiktímanum
· Leikið er eftir minniboltareglum KKÍ
· Stig eru ekki talin
· Vörn er ekki leyfð fyrir framan miðju
· Ef brotið er á skotmanni er gefið eitt vítaskot
Dómarar Póstmótsins skulu:
· Vera virkir þátttakendur í leiknum og leiðbeina leikmönnum þegar það á við
· flauta hátt og segja leikmönnum skýrt hvað var dæmt og hver eigi boltann
· Ná í boltann við hvern dóm og afhenda í innkasti, gott að leyfa þeim leikmanni sem brotið var á að taka innkastið
· Leiðbeina leikmönnum hvar þeir eigi að standa í vítaskotum