spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÞórir Guðmundur og Oviedo lutu í lægra haldi gegn Melilla

Þórir Guðmundur og Oviedo lutu í lægra haldi gegn Melilla

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson og Oviedo máttu þola tap í kvöld fyrir Melilla í Leb Oro deildinni á Spáni, 69-78.

Á rúmum 12 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Þórir Guðmundur 7 stigum, stoðsendingu og 2 stolnum boltum.

Oviedo eru eftir leikinn í 15. sæti deildarinnar með 7 sigra það sem af er tímabili, en þeir eru aðeins tveimur sigurleikjum fyrir ofan fallsæti úr deildinni.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -