Íslenska kvennalandsliðið mætir í kvöld landsliði Bosníu í sínum síðasta leik í riðlakeppninni í undankeppninni fyrir EM kvenna 2019. Lokamótið fer fram næsta sumar í Serbíu og Lettlandi.
Leikurinn hefst kl. 19:45 í Laugardalshöllinni og verður í beinni útsendingu á RÚV2.
Miðasala á leikinn er á Tix:is hérna.
Íslenska liðið er án stiga en Bosnía er í baráttu um 1.-2. sæti riðilsins ásamt Slóvakíu og Svartfjallalandi sem mætast einnig í kvöld.
Konurnar okkar munu mæta ákveðnar til leiks og ætla að klára keppnina með góðum leik. Í kvöld mun Helena Sverrisdóttir leika sinn 70. landsleik. Aðeins Birna Valgarðsdóttir (76 leikir) og aðstoðarþjálfari landsliðsins í dag, Hildur Sigurðardóttir (79 leikir) hafa leikið fleiri leiki fyrir Íslands hönd.
Ein breyting hefur verið gerð á leikmannahópi liðsins frá því í leiknum gegn Slóvakíu en Sóllilja Bjarnadóttir frá Breiðablik kemur inn í liðið í stað Birnu Benónýsdóttur frá Keflavík.
Leikmannahópurinn er því þannig skipaður gegn Bosníu:
# | Leikmaður | Félag | Staða | Hæð | F. ár | Landsleikir |
1 | Bríet Sif Hinriksdóttir | Stjarnan | B | 174 | 1996 | 1 |
3 | Unnur Tara Jónsdóttir | KR | F | 178 | 1989 | 4 |
4 | Helena Sverrisdóttir | Valur | F | 184 | 1988 | 69 |
5 | Hildur Björg Kjartansdóttir | Celta de Vigo | F | 188 | 1994 | 24 |
6 | Hallveig Jónsdóttir | Valur | B | 180 | 1995 | 13 |
8 | Embla Kristínardóttir | Keflavík | B | 170 | 1995 | 15 |
9 | Sigrún Sjöfn Ámundadóttir | Skallagrímur | F | 181 | 1988 | 52 |
10 | Gunnhildur Gunnarsdóttir | Snæfell | F | 176 | 1990 | 28 |
13 | Þóra Kristín Jónsdóttir | Haukar | B | 173 | 1997 | 9 |
22 | Berglind Gunnarsdóttir | Snæfell | F | 177 | 1992 | 20 |
23 | Sóllilja Bjarnadóttir | Breiðablik | B | 175 | 1995 | 4 |
24 | Guðbjörg Sverrisdóttir | Valur | B | 180 | 1992 | 17 |