Carmelo Anthony og forráðamenn Houston Rockets virðast hafa komist að samkomulagi um að Carmelo muni yfirgefa liðið. Þetta hefur Daryl Morey framkvæmdarstjóri Rockets staðfest í yfirlýsingu. “Eftir viðræður á milli aðila þá hefur sú ákvörðun verið tekin að Carmelo Anthony muni yfirgefa lið Houston Rockets og unnið er að úrlausn þessa máls.” sagði meðal annars í yfirlýsingunni.
Carmelo kaus að spila ákveðið hlutverk fyrir Houston þegar hann skrifaði þar undir en að einhverjum sökum virðast hlutirnir ekki ganga upp og margir þá skrifað það á varnarleik kappans, eða þá í raun vöntun á varnarleik hans.
Carmelo hefur spilað 16 ár í deildinni og er 34 ára gamall. Kappinn hefur spilað 10 leiki með Houston og hafa þeir tapað 6 leikjum en unnið 4. Síðan Carmelo hefur verið utan hóps er liðið með 2 sigra og 1 tap. Þó svo að ekkert sé ákveðið með framtíð kappans hafa lið eins og Los Angeles Lakers, New Orleans og Portland verið nefnd sem hans næsti staður.