spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaLeikir dagsins: Stórleikur í Garðabæ

Leikir dagsins: Stórleikur í Garðabæ

Sjöunda umferð Dominos deildar karla lýkur í kvöld með tveimur leikjum. Leikir dagsins eru ansi stórir og verður spennandi að sjá hvernig liðin mæta til leiks.

Í Grindavík er suðurnesjaslagur er Njarðvík mætir í heimsókn. Leikurinn verður væntanlega fyrsti leikur Elvars Friðrikssonar á Íslandi í langan tíma og verður gaman að sjá hann spila aftur.

Liðunum sem var spáð efstu tveimur sætunum fyrir tímabilið mætast í Mathús Garðabæjarhöllinni. Stjarnan fær Tindastól í heimsókn í stórleik umferðarinnar.

Þá fara þrír leikir fram í 1. deild karla þar sem mikil spenna er á toppi deildarinnar.

Leikir morgundagsins

Dominos deild karla:

Grindavík – Njarðvík – kl. 18:30

Stjarnan – Tindastóll – kl. 20:15

1. deild karla:

Snæfell – Þór – kl. 19:15

Vestri – Hamar – kl. 19:15

Fjölnir – Höttur – kl. 19:15

 

Fréttir
- Auglýsing -