spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaGintautas Matulis yfirgefur lið Þórs

Gintautas Matulis yfirgefur lið Þórs

Litháíski framherjinn Gintautas Matulis hefur yfirgefið herbúðir Þórs í Dominos deild karla. Samkvæmt þjálfara liðsins, Baldri Þór Ragnarssyni, er leikmaðurinn farinn aftur til Litháen til þess að jafna sig á þeim meiðslum sem hann varð fyrir í leik með liðinu gegn Njarðvík í annarri umferð Dominos deildarinnar.

Samkvæmt þjálfaranum er ekki loku fyrir það skotið að Matulis muni koma aftur til liðsins eftir áramót þegar hann verður búinn að ná sér af meiðslunum. Kveðst hann þá þó vera að leita að leikmanni til að fylla í skarðið, en í fjórum leikjum fyrir Þór skilaði Matulis 10 stigum, 5 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik.

Fréttir
- Auglýsing -