spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaHaustskemmtun Skallagríms um næstu helgi

Haustskemmtun Skallagríms um næstu helgi

Borgnesingar láta ekki haustið og lægðirnar aftra sér í því að sletta ærlega úr klaufunum. Næstkomandi laugardagskvöld verður haldið strangheiðarleg Haustskemmtun til styrktar meistaraflokkum Skallagríms.

Boðið verður til þjóðlegs haustveisluhlaðborðs þar sem klassískt kjöt í karrý, steikt lifur og hjörtu, lifrarpylsa og steikt blóðmör auk sviðaslutna með tilheyrandi meðlæti eru á boðstólnum. Þetta allt á einungis 3000 kr.

Kvöldið verður haldið í Hjálmaklett og er veislustjórn í höndum alþingismannanna og nafnanna Ásmundar Einars Daðasonar og Ásmundar Friðrikssonar. Ræðumaður kvöldsins verður Guðni Ágústsson.

Ýmis skemmtistriði, lifandi tónlist, happdrætti o.fl. Húsið opnar kl 19:00 og ráðgert að formlegri skemmtun ljúki um miðnættið.

Hægt að kaupa miða í Tækniborg, hjá leikmönnum Skallagríms eða með því að senda skilaboð á facebooksíðu Skallagríms.

Skallagrímsmenn segja æskilegt að skilja kjólföt og spariklæðnað eftir heima en vilja fá góða skapið með í staðinn.  Allt til styrktar meistaraflokksliða Skallagríms.

Fréttir
- Auglýsing -