Annar leikur Raiffeisen Wels í Austurrísku Bundesligunni fór fram í gær þar sem Dagur Kár var í stóru hlutverki.
Dagur lék þrettán mínútur fyrir Wels en setti 19 stig. Hann var í byrjunarliði liðsins og var einnig með fjórar stoðsendingar. Hann lenti hinsvegar í villuvandræðum og lék því ekki meira.
Flyers Wels vann leikinn örugglega 72-111 gegn Furstenfeld Panthers. Liðið hefur unnið báða leiki sína í deildinni til þessa.
Dagur Jonsson @DagurKarJonsson scored 19 points in 13 (!) minutes to push @flyerswels to a road win in Furstenfeld in Austrian League @ABL_Basketball @Karfan_is
— Tangram Sports (@TangramSports) October 13, 2018