Sterkasta deild Evrópu fer af stað í kvöld þegar fyrstu leikirnir í Euroleague hefjast. Mikil spenna er fyrir komandi tímabili enda mörg lið sem gera tilkall til þess stóra.
Það er risaslagur strax á fyrsta degi þegar CSKA Moskva sem hefur þegar sýnt að liðið er það alsterkasta í Evrópu fær Barcelona í heimsókn. Katalóníubúarnir eru með mjög breytt lið enn eitt árið í röð en væntingarnar eru miklar.
Liðin leika tvær umferðir í vetur og því þrjátíu umferðir. Mikið um stórleiki og almennti fjör. Nokkur stór félagaskipti hafa átt sér stað í sumar og má finna þau helstu hér.
Vert er að benda á að hægt er að horfa á alla leiki vetrarins í áskrift hjá Euroleague hér. Þar er hægt að kaupa aðgang að öllum leikjum í Euroleague og EuroCup fyrir rúmar 13 þúsund krónur allt tímabilið. Martin Hermannsson leikur með Alba Berlín í EuroCup og því hægt að sjá alla leiki hans þar með þessari áskrift.
Euroleague sparaði engu til við gerð á glæsilegri auglýsingu í tilefni þess að tímabilið er að hefjast. Auglýsing sem engin ætti að láta framhjá sér fara.
It’s Duel time! #TeamArlauckas or #TeamPapaloukas??
Let the show begin pic.twitter.com/3Cjd2hBVlE
— EuroLeague (@EuroLeague) October 5, 2018
Fyrsta umferð Euroleague 2018-2019:
Miðvikudagurinn 11. október:
CSKA Moskva-Barcelona
Panathinikos-Maccabi Tel Aviv
Bayern Munich – Andalou Efes
Real Madrid – Darussafaka Istanbul
Fimmtudagurinn 12. október:
Buducnost Podgrorica – Olimpia Milan
Khimki Moskva – Olympiacos
Zalgiris Kaunas – Baskonia
Fenerbache – Gran Canaria