spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaBaldur Þór: Teljum okkur geta spilað við öll liðin í deildinni

Baldur Þór: Teljum okkur geta spilað við öll liðin í deildinni

Dominos deild karla hefst í kvöld með fjórum leikjum. Líkt og áður er mikil spenna fyrir nýju tímabili en miklar breytingar hafa orðið á liðunum sem gerir spennuna jafnvel enn meiri fyrir þetta tímabil.

Karfan hitar upp fyrir tímabilið með því að fara yfir öll liðin og ræða við leikmann eða þjálfara liðsins. Næst er það Þór frá Þorlákshöfn

Þór Þ

Síðasta tímabil var ákveðin vonbrigði fyrir hafnarbúa en meiðsli og veikindi settu sterkan svip sinn á liðið. Baldur er nú tekinn alveg við liðinu og verður gaman að sjá hvernig eldskírn hans sem aðalþjálfari verður.

Spá KKÍ: 10. sæti

Lokastaða á síðustu leiktíð: 9. sæti

Þjálfari liðsins: Baldur Þór Ragnarsson

Leikmaður sem vert er að fylgjast með: Halldór Garðar Hermannsson. Bakvörðurinn gæti tekið næsta skref á sínum ferli á þessu tímabili. Hæfileikaríkur leikmaður sem Þórsarar þurfa á að halda að nái stöðugleika í sinn leik. 

Komnir og farnir: 

Komnir:

Ragnar Örn Bragason frá Keflavík

Nick Tomsick frá Króatíu

Kinu Rochford frá Bretlandi

Gintautas Matulis frá BC Nevėžis í Litháen

Farnir:

Dj Balentine óljóst

Chaz Willliams óljóst

Snorri Hrafnkelsson til Breiðablik

Ólafur Helgi Jónsson til Njarðvíkur

Adam Eiður Ásgeirsson til Njarðvíkur

Óli Ragnar Alexandersson hættur

Viðtal við Baldur Þór um komandi leiktíð:

Fréttir
- Auglýsing -