spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaGuðbjörg: Hún þarf að segja fallega hluti um mig

Guðbjörg: Hún þarf að segja fallega hluti um mig

Dominos deild kvenna hefst í kvöld með fjórum leikjum. Líkt og áður er mikil spenna fyrir nýju tímabili en miklar breytingar hafa orðið á liðunum sem gerir spennuna jafnvel enn meiri fyrir þetta tímabil.

Karfan hitar upp fyrir tímabilið með því að fara yfir öll liðin og ræða við leikmann eða þjálfara liðsins. Næst er það Valur.

Valur

Valsarar fóru í fyrsta skipti í úrslitaeinvígi efstu deildar á síðustu leiktíð og voru ekki langt frá þeim stóra. Liðið ætlar sér væntanlega að byggja ofan á því og gera betur. Liðið heldur sama kjarna og ættu að vera til alls líklegt.

Spá KKÍ: 3. sæti

Lokastaða á síðustu leiktíð: 3. sæti

Þjálfari liðsins: Darri Freyr Atlason

Leikmaður sem vert er að fylgjast með: Ásta Júlía Grímsdóttir. Ungur leikmaður sem spilar undir körfunni. Fær tækifæri þar sem miðherjarnir frá því í fyrra hafa farið annað. Ætti að geta tekið næsta skref á sínum ferli.

Komnar og farnar: 

Komnar:

Marín Matthildur Jónsdóttir frá KR

Brooke Johnson frá UNLV (USA)

Simona Podesvova frá Frakklandi

Kristín Alda Jörgensdóttir frá Ármann

Farnar:

Elín Sóley Hrafnkelsdóttir til Tulsa (USA)

Ragnheiður Benónýsdóttir til Stjörnunnar

Bylgja Sif Jónsdóttir til ÍR

Aaliyah Whiteside til USA

Viðtal við Guðbjörgu Sverrisdóttur um komandi tímabil:

Fréttir
- Auglýsing -