spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaSigrún Sjöfn: Minn dýpsti draumur er að ná í titil fyrir félagið...

Sigrún Sjöfn: Minn dýpsti draumur er að ná í titil fyrir félagið mitt

Dominos deild kvenna hefst í kvöld með fjórum leikjum. Líkt og áður er mikil spenna fyrir nýju tímabili en miklar breytingar hafa orðið á liðunum sem gerir spennuna jafnvel enn meiri fyrir þetta tímabil.

Karfan hitar upp fyrir tímabilið með því að fara yfir öll liðin og ræða við leikmann eða þjálfara liðsins. Nú er komið að Borgnesingum.

Skallagrímur

Borgnesingar virðast hafa fest sig í sessi í efstu deild kvenna eftir tvö góð tímabil þar sem liðið komst í undanúrslit. Liðið er gjörbreytt á komandi tímabili og þurfa að treysta á erlenda leikmenn. Mörgum spurningum er enn ósvarað um lið Skallagríms en það virðist góð stemmning í liðinu fyrir komandi átökum.

Spá KKÍ: 5. sæti

Lokastaða á síðustu leiktíð: 4. sæti

Þjálfari liðsins: Ari Gunnarsson

Leikmaður sem vert er að fylgjast með: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir. Það er ekki mikið um unga leikmenn sem gætu fengið tækifæri í vetur en Sigrún er reynslumikill leikmaður og gæti orðið einn albeti leikmaður deildarinnar. Skallarnir þurfa á frábæru tímabili að halda frá Sigrúnu og því spennandi að fylgjast með því.

Komnar og farnar: 

Komnar:

Karen Dögg Vilhjálmsdóttur frá Njarðvík

Bryeasha Blair frá South Carolina State

Maja Michalska frá Southeastern University (USA)

Shequila Joseph frá Fassi Edelweiss Albino (Ítalíu)

Ines Kerin frá Eveil Garnachois Basket Vendée (Frakkland)

Farnar:

Jóhanna Björk Sveinsdóttir til Stjörnunnar

Carmen Tyson-Thomas til Ástralíu

Sólrún Sæmundsdóttir til Stjörnunnar

Fanney Lind Thomas hætt

Bríet Líf Sigurðardóttir til Hauka

Jeanne Lois Figueroa Sicat óljóst

Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir hætt

Sunna Þórarinsdóttir óljóst

Viðtal við Sigrúnu Sjöfn um komandi tímabil

Fréttir
- Auglýsing -