spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaJulian Rajic til Njarðvíkur

Julian Rajic til Njarðvíkur

Miðherjinn Julian Rajic hefur samið við körfuknattleiksdeild Njarðvíkur en hann leysir af hólmi Gerald Robinson.

Julian er 206cm miðherji og var með Njarðvík síðastliðinn föstudag í æfingaleik gegn Skallagrím.

Rajic hefur síðustu ár leikið með KK Hermes Znalitica þar sem hann var með 12,6 stig og 5,3 fráköst að meðaltali í leik.

Á heimasíðu Njarðvíkur segir að Julian hafi verið nýkominn til landsins þegar liðið lék gegn Skallagrím en er óðar að koma sér fyrir í Njarðvík og verður klár í slaginn næsta föstudag þegar vertíðin hefst með látum á viðureign Njarðvíkur og Keflavíkur í Ljónagryfjunni.

Fréttir
- Auglýsing -