Martin Hermannsson hóf leik í þýsku úrvalsdeildinni í gær er lið hans Alba Berlín mætti liði Jena.
Full höll var í Berlín og gríðarleg stemmning. Martin Hermannsson var í byrjunarliði Alba Berlín í leiknum en sigur heimamanna var aldrei í hættu.
Lokastðan var 112-55 þar sem Martin Hermannsson var með fjórar stoðsendingar og þrjú fráköst. Martin lék nærri 22 mínútur í leiknum en enginn leikmaður liðsins lék jafn mikið.
Helstu tilþrif leiksins má finna hér að neðan: