Martin Hermannsson, og félagar hans í Alba Berlín, hefja leik í dag í Bundesdeildinni (Úrvalsdeildinni) í Þýskalandi. Deildin hófst í gær með þremur leikjum þar sem að t.a.m. gamli klúbburinn hans Loga Gunnarssonar,ULM tapaði gegn Bayern Munchen.
Í dag tekur Alba Berlín á móti Jena í fyrstu umferðinni og óhætt að segja að Martin og samherjar séu taldir sigurstranglegri í þeirri viðureign. Alba hefur verið að spila æfingaleiki og sá síðasti fór fram gegn spænska liðinu Zaragoza (þar sem Jón Arnór spilaði meðal annars) og töpuðu Alba þeim leik 70:97 þar sem að Martin skoraði 11 stig og sendi 4 stoðsendingar.