spot_img
HomeFréttirSystkinin með flauturnar

Systkinin með flauturnar

 

Flestir körfuboltaunnendur á Íslandi kannast við að hafa skoðun á hinum eða þessum dómum í leikjum og telja sig eflaust geta staðið sig betur en margir dómarar á Íslandi. Því fer þó fjarri að þetta sé auðvelt starf og ljóst að mikla ástríðu þarf til að verða meðal fremstu og þekktustu dómara á Íslandi. Stuttu eftir áramót ræddi Karfan.is við þau Davíð Tómas Tómasson og Georgíu Olgu Kristiansen og reyndi að kafa ofan í störf þeirra. 

Það vita það kannski ekki allir, en þau eru systkini og hafa dæmt í rúman áratug á Íslandi (með hléum hér og þar). Við ræddum um dómarastarfið, erfiða dóma, samskipti við þjálfara og leikmenn og framtíðarhorfur dómarastéttarinnar á Íslandi ásamt öðru.

Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson

 

Fylgið Podcasti Karfan.is á iTunes hér

0:00:00 – Kynning
0:00:45 – Hvar körfuboltaáhuginn byrjaði
0:11:40 – Hvenær færslan varð úr leikmanni yfir í dómara
0:19:30 – Munurinn á að dæma karla- og kvennakörfubolta gegnum árin
0:30:25 – Hlutverk og samskipti dómara við leikmenn og þjálfara
0:40:05 – Símenntun dómara utan leiksins
0:48:10 – Samstarf (og samkeppni) við aðra dómara
0:55:00 – Minnisstætt atvik í dómgæslu hjá Davíð
0:59:00 – Reglukunnátta leikmanna og annarra
1:03:00 – Nýja óíþróttamannslega villan og túlkun hennar
1:10:00 – Nýja skrefareglan og túlkun hennar
1:16:50 – Vinnuálag dómara (hvað eru þau að dæma mikið)
1:21:35 – Lífið og dómgæslan (og árekstrar þar á milli)
1:25:50 – Klíkuskapur dómara? Er það til?
1:30:00 – Reynsla dómara hérlendis og erlendis
1:33:20 – Hvernig má fjölga dómurum á Íslandi?
1:36:15 – Stærsta nafnið sem Davíð hefur dæmt leik hjá
1:38:45 – Ráð til verðandi dómara

 

 

Fréttir
- Auglýsing -