Íslenska kvennalandsliðið er þessa dagana í Sarajevó í Bosníu að undirbúa sig fyrir tvo leiki í undankeppni EuroBasket. Á morgun mæta þær heimastúlkum í fyrri leiknum kl. 16:00 og mun sá leikur verða í beinni útsendingu á Ríkissjónvarpinu.
Bosnía og borgin Sarajevó fór árin 1992-1996 í gegnum umsátursástand og blóðugt stríð í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingar Bosníu og Hersegóvínu. Ummerki stríðsins skoðaði liðið í gær, þar sem að meðal annars voru skoðuð 800 metra löng göng sem gerð voru af heimamönnum að flugvellinum á meðan að stríðinu stóð.
Myndir frá deginum er að finna í færslu Körfuknattleikssambandsins hér fyrir neðan.