Stjarnan lagði Snæfell með minnsta mun mögulegum í kvöld í lokaleik deildarkeppni fyrstu deildar kvenna, 74-73.
Stjarnan hafði þegar tryggt sér efsta sæti deildarinnar fyrir leik kvöldsins og fengu deildarmeistarabikarinn afhendan eftir leik í Umhyggjuhöllinni. Snæfell sömuleiðis voru öruggar með að enda í þriðja sætinu.
Karfan spjallaði við fyrirliða Stjörnunnar Isold Sævarsdóttur eftir leik í Umhyggjuhöllinni.