Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar ræða Helena Sverrisdóttir og Finnur Atli Magnússon lífið og tilveruna, bæði innan og utan körfunnar. Hjónin tilvonandi (sem gifta sig í sumar) fara yfir fyrstu minningarnar úr körfunni, tala um fyrsta stefnumótið sitt, ræða körfuboltann í Hafnarfirði og hvernig systkini makans hafi tekið á móti sér.
Við ræðum seinasta spennuleik beggja og atvinnumennsku hjá íslenskum leikmönnum. Að lokum spá þau í úrslitakeppnina hjá hinu og hvort að þriðji gesturinn í viðtalinu muni verða körfuboltastjarna.
Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson
Podcast Karfan.is er einnig iTunes
Dagskrá:
00:00:45 – Hvar byrjaði karfan hjá Helenu og Finni (og kynning á þriðja gestinum)
00:08:15 – Þegar Finnur og Helena kynntust (fyrstu kynni og fyrsta deitið)
00:15:30 – Hvernig hvatningin er á heimilinu hjá Helenu og Finni
00:17:20 – Haukarnir og uppgangur körfubolta í Hafnarfirði
00:23:10 – Þjálfararnir Helena og Finnur (og koma Finns í Hauka)
00:29:50 – Finnur og Helena og samband þeirra
00:34:50 – Seinasti leikur beggja fyrir 4-liða úrslitin (leikur 5 gegn Keflavík hjá Finn, framlengdur leikur gegn Skallagrím hjá Helenu)
00:39:30 – Systkini Finns og Helenu; að mætast bæði innan og utan vallar
00:47:40 – Körfuboltinn eftir að barn kemur í heiminn (og hlutverk innan Hauka)
00:51:50 – Framtíð körfuboltans í Hafnarfirði (leikmenn á leið upp, aðrir á leið út í atvinnumennsku og sumir í öðrum liðum)
00:57:20 – Atvinnumennska erlendis í kvennakörfunni, hvað þarf að gerast til að fleiri íslenskar komist út í atvinnumennsku?
01:05:40 – Helena og Finnur að þjálfa meistaraflokkana eftir einhver ár?
01:08:30 – Spáð í spilin með úrslitakeppnina (Helena spáir fyrir um karlana, Finnur um konurnar)