spot_img
HomeFréttirSögulega stutt milli Íslandsmeistaratitils KR og falls í fyrstu deildina

Sögulega stutt milli Íslandsmeistaratitils KR og falls í fyrstu deildina

Fall KR úr Subway deild karla fer í sögubækurnar fyrir nokkarar sakir. Meðal annars þá staðreynd að í 67 ára sögu félagsins hefur það aldrei gerst áður. Líkt og ljósmyndarinn og fyrrum dómarinn Gunnar Freyr Steinsson bendir á á samfélagsmiðlum fer fall KR einnig í sögubækurnar fyrir hversu stutt er síðan að liðið varð Íslandsmeistari, en félagið var ríkjandi Íslandsmeistari frá árinu 2014 til 2021. Á þessum tíma vann félagið sex titla, en það er lengsta sigurganga félags eftir að fyrirkomulag úrslitakeppni var komið á á níunda áratug síðustu aldar.

Sé tekið mið af deildinni fyrir og eftir úrslitakeppni er þetta fall KR nokkuð styttra frá titil heldur en það félag sem er í öðru sæti, þar sem Snæfell er næst á listanum með sjö ár á milli, vinna titilinn 2010 og eru fallnir 2017.

Sé heildarsamhengið skoðað miðað við öll lið sem léku bæði fyrir/eftir úrslitakeppni og þau lið sem hættu stuttu eftir að hafa unnið þann stóra er bil KR jafnt í 2.-4. sæti listans. Þar sem Ármenningar tróna á toppinum með tvö tímabil eftir titil og fyrir fall, 1976 og 1978. Liðin tvö sem eru jöfn KR í þessu 2.-4. sæti hættu bæði keppni fjórum tímabilum eftir að þau unnu titil, ÍKF árið 1962 og ÍS árið 1963, en þá var heldur engin fyrsta deild til þess að falla í.

Fréttir
- Auglýsing -