Nú þegar styttast fer í undirbúningstímabil flestra liða eru leikmannahópar liðanna að skýrast. Enn er margt óljóst en leikmannamarkaður sumarsins hefur verið ansi tíðindamikill.
Á dögunum gaf Karfan.is út mjög ótímabæra kraftröðun þar sem staðan á liðunum er metin. Í þessum þætti förum við yfir liðin í Dominos deild karla ásamt Bryndísi Gunnlaugsdóttur og spáum í spilin.
Umsjón: Ólafur Þór og Davíð Eldur
Efnisyfirlit:
2:00 – 12.-10. sæti
13:20 – 9.-7. sæti
21:50 6.-4. sæti
31:45 – 3.-1. sæti
43:40 – Hvaða bitar eru eftir á markaðnum?
48:45 – Fleiri erlendir leikmenn, gott eða slæmt?