Undir 18 ára lið drengja leikur þessa dagana á Evrópumóti í Skopje í Makedóníu. Liðið sigraði aðeins einn leik sinn í riðlakeppninni. Klukkan 14:30 í dag mætir Ísland liði Búlgaríu í úrslitum um 9.-16. sæti mótsins.
Hægt verður að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu hér að neðan, en annars eru allar upplýsingar um mótið og lifandi tölfræði að finna á heimasíðu keppninnar hér.
Þá munu fréttir af mótinu vera á Körfunni.