spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaMikilvægasti leikmaður Hamars frá síðasta tímabili til liðs við Breiðablik

Mikilvægasti leikmaður Hamars frá síðasta tímabili til liðs við Breiðablik

Nýliðar Breiðabliks halda áfram að safna liði fyrir komandi leiktíð í Dominos deild karla. Líkt og Karfan.is greindi frá í gær ákvað Þorsteinn Finnbogason að semja við liðið. Blikar tilkynntu komu hans svo formlega í gær og einnig að Þorgeir Freyr Gíslason hefði samið við liðið en hann kemur frá Hamri

 

Í tilkynningu Breiðabliks segir: "Þorgeir sem er fæddur árið 1995 er 188 seintímetrar á hæð leikur í stöðu bakvarðar. Þorgeir er þúsundþjalasmiður á velli en hann er leikmaður sem getur brotið sér leið að körfunni, skotið boltanum fyrir utan regnbogann og á auðvelt með að halda mönnum fyrir framan sig í vörn. Þorgeir skilaði 12.2 stigum, 5.6 fráköstum, 2 stoðsendingum á 28 á mínútum að meðatali í leik fyrir Hamar á síðasta keppnistímabili í 1.deild." 

 

Í sömu tilkynningu segir Pétur Ingvarsson þjálfari liðsins um komu þeirra félaga.„Ég fagna komu þeirra beggja, þetta eru vel spilandi leikmenn sem eru ekki að stíga sín fyrstu skref í þessari íþrótt. Tilkoma þeirra mun styrkja hópinn og gefa okkur aukna vídd bæði 
varnar- og sóknarlega“ 

 

Blikar hafa verið á fullu að semja við leikmenn fyrir komandi leiktíð. Fyrr í sumar hafði liðið samið við Arnór Hermannsson, Bjarni Geir Gunnarsson, Hilmar Pétursson og Snorra Hrafnkelsson um að leika í grænu sem leika sem nýliðar í Dominos deild karla á komandi leiktíð. Þorgeir þekkir vel til þjálfara liðsins, Péturs Ingvarssonar en hann þjálfaði Hamar á síðustu leiktíð.

 
 
Fréttir
- Auglýsing -