Verður Stjarnan Íslandsmeistari? Það er svosem aldrei að vita. Einhverja tölfræði er þó mögulega hægt að fá út úr stöðu liða yfir áramótin. 3 lið af 10 sem hafa verið á toppi deildarinnar yfir hátíðarnar síðustu 10 ár hafa náð að klára tímabilið með sigri á þeim stóra, eða 30%.
Það virðist því algjörlega uppi í loftinu hvort að lið Stjarnan nái að tryggja sér þann stóra, eða ekki? Í raun líklegra að þeir geri það ekki, en liðið er sem stendur á toppi deildarinnar eftir 11 umferðir með 9 sigurleiki og 2 töp, einum sigurleik fyrir ofan Keflavík og Tindastól sem eru í 2.-3. sæti deildarinnar.
2009-2010
Efsta lið deildar um jól Stjarnan
Íslandsmeistarar Snæfell
2010-2011
Efsta lið deildar um jól Snæfell
Íslandsmeistarar KR
2011-2012
Efsta lið deildar um jól Grindavík
Íslandsmeistarar Grindavík
2012-2013
Efsta lið deildar um jól Þór Þorlákshöfn
Íslandsmeistarar Grindavík
2013-2014
Efsta lið deildar um jól KR
Íslandsmeistarar KR
2014-2015
Efsta lið deildar um jól KR
Íslandsmeistarar KR
2015-2016
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar KR
2016-2017
Efsta lið deildar um jól Tindastóll
Íslandsmeistarar KR
2017-2018
Efsta lið deildar um jól Haukar
Íslandsmeistarar KR
2018-2019
Efsta lið deildar um jól Tindastóll
Íslandsmeistarar KR
2019-2020
Efsta lið deildar um jól Stjarnan
Íslandsmeistarar???