Sjöunda umferð Dominos deildar kvenna rúllar af stað í dag með þremur leikjum.
Haukar heimsækja KR í Vesturbæinn, Skallagrímur fær Íslandsmeistara Vals í heimsókn og í Smáranum mætast heimakonur í Breiðablik og nýliðar Grindavíkur.
Mest spennandi leikur dagsins án alls vafa viðureign Grindavíkur og Breiðabliks, en til þessa eru bæði lið án sigurs í deildinni. Þannig að liðið sem tapar þeim leik, mun verða eftir í eina fallsæti deildarinnar.
Þá eru einnig þrír leikir í fyrstu deildum karla og kvenna.
Leikir dagsins
Dominos deild kvenna:
KR Haukar – kl. 17:00
Breiðablik Grindavík – kl. 17:30
Skallagrímur Valur – 18:00
Fyrsta deild karla:
Höttur Vestri – kl. 15:00
Fyrsta deild kvenna:
Keflavík Hamar – kl. 16:00
Fjölnir Tindastóll – kl. 16:00