Viðtal við Ágúst Björgvinsson þjálfara Vals þar sem hann var m.a. spurður út í fjarveru Christopher Rasheed Jones leikmanns Vals sem mætti ekki til leiks með liðinu eftir hálfleik í leik Keflavíkur og Vals í kvöld. Keflavík leiddi allan leikinn og unnu þrátt fyrir heiðarlega tilraun Vals til að komast inn í leikinn undir lok þriðja og í byrjun fjórða leikhluta. Keflvíkingar kláruðu leikinn með látum og unnu að lokum sanngjarnan sigur 93 – 82.