Lykill: Ásta Júlía Grímsdóttir - Karfan
spot_img
HomeFréttirLykill: Ásta Júlía Grímsdóttir

Lykill: Ásta Júlía Grímsdóttir

Lykilleikmaður undir 18 ára liðs kvenna á nýafstöðnu Norðurlandamóti í Kisakallio var Ásta Júlía Grímsdóttir.

Í fimm leikjum fyrir liðið skilaði Ásta 15 stigum, 10 fráköstum, 2 vörðum skotum og stoðsendingu að meðaltali í leik. Af öllum leikmönnum mótsins var hún sú fjórða stigahæsta, þriðja hæst í fráköstum, næst hæst í skilvirkni, með þriðju bestu vítanýtinguna og efst í vörðum skotum og tvennum.

Besti leikur: 68-59 sigur á Noregi, með 22 stig, 16 fráköst, 2 varin skot og stoðsending.

Fréttir
- Auglýsing -