spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaHilmar Smári til Valencia

Hilmar Smári til Valencia

Það er stórt skammra högga á milli hjá stórliði Valencia þegar að kemur að íslenskum leikmönnum. Fyrir stuttu var Tryggvi Snær Hlinason látinn fara frá liðinu en í dag var kunngjört í Morgunblaðinu að bakvörðurinn efnilegi, Hilmar Smári Henningsson væri á leiðinni til liðsins en hann var á reynslu hjá liðinu í vetur.

Samningurinn gildir til tveggja ára með möguleika á framlengingu.

Hinn 19 ára gamli Hilmar Smári átti frábært tímabil með Haukum í Dominos-deildinni í vetur, hann var með 14 stig, 2,4 fráköst og 3,4 stoðsendingar að meðaltali í leik. Þá lék hann einnig sína fyrstu A-landsleiki á nýafstöðnum smáþjóðaleikum.





Fréttir
- Auglýsing -