Breiðablik verður áfram á meðal liða í deild þeirra bestu á næstu leiktíð en liðið tekur sæti Stjörnunnar sem dróg lið sitt úr leik á dögunum. Þetta staðfestu forsvarsmenn Breiðablik við Körfuna í morgun.
Breiðablik féll úr Dominos deildinni á síðustu leiktíð með átta stig, fjórum stigum á eftir Skallagrím. Liðið var skipað ungum og efnilegum leikmönnum en mikill stígandi var á liðinu á nýliðnu tímabili. Liðið vann þrjá af fjórum leikjum sínum á tímabilinu í lokaumferðinni.
Ívar Ásgrímsson fyrrum landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna tók við þjálfun liðsins fyrir nokkrum vikum. Eftir að Stjarnan hafði dregið lið sitt úr keppni fyrir nokkru var Breiðablik boðið sæti sem liðið hefur nú ákveðið að þiggja.