KR samdi í kvöld til eins árs við Sóllilju Bjarnadóttur fyrir komandi tímabil í Dominos deild kvenna.
Sóllilja kemur úr Breiðabliki, en á síðasta tímabili skilaði hún 9 stigum, 4 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í 27 leikjum fyrir félagið.
Ásamt því að leika fyrir KR, mun hún einnig sjá um þjálfun í minnibolta hjá félaginu.
Leikmaðurinn sá annar sem félagið tilkynnir á nokkrum vikum, en í maí gerði KR samning við Hildi Björg Kjartansdóttur.