spot_img
HomeFréttirStrákarnir náðu í bronsið á Smáþjóðaleikunum - Lögðu Kýpur með 33 stigum...

Strákarnir náðu í bronsið á Smáþjóðaleikunum – Lögðu Kýpur með 33 stigum í dag

Ísland lauk leik í dag á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi með 33 stiga sigri á Kýpur, 86-53.

Kristinn Pálsson stigahæstur fyrir Ísland í dag með 19 stig, þá bætti Dagur Kár Jónsson við 17 og Þórir Guðmundur Þorbjarnarson 14.

Tölfræði leiks

Með sigrinum endaði liðið með 50% vinningshlutfall á mótinu, 2 sigurleiki og 2 tapleiki. Gaf það þeim þriðja sætið, einum sigurleik fyrir aftan Lúxemborg í öðru sætinu og tveimur fyrir aftan heimamenn í Svartfjallalandi sem sigruðu mótið.

Staðan á mótinu

Fréttir
- Auglýsing -