spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaBjörgvin Hafþór til Grindavíkur

Björgvin Hafþór til Grindavíkur

Grindavík er á fullu þessa dagana að safna liði fyrir baráttuna í Dominos deild karla á næsta tímabili. Rétt í þessu var tilkynnt að liðið hefði náð samkomulagi við nýjan leikmann.

Björgvin Hafþór Ríkharðsson hefur samið við Grindavík um að leika með liðinu á næstu leiktíð. Björgvin kemur frá Skallagrím þar sem hann lék á þessari leiktíð. Samningur Björgvins við Grindavík er til tveggja ára.

Björgvin var með 10,2 stig, 5,9 stoðsendingar og 7,1 frákast að meðaltali í leik fyrir Skallagrím á þessari leiktíð. Hann var fyrirliði liðsins sem endaði í 11. sæti og féll úr Dominos deildinni.

Björgvin yfirgefur þar með uppeldisfélagið en hann hefur einnig leikið með Fjölni, ÍR og Tindastól á sínum ferli við góðan orðstýr.

Grindavíkur hefur verið á fullu að semja við leikmenn sína síðustu misseri en þeir Ólafur Ólafsson og Sigtrygggur Arnar framlengdu á dögunum samninga sína. Þá hefur Daníel Guðni Guðmundsson tekið við stýrinu af Jóhanni Þór Ólafssyni og mun stýra liðinu næstu misseri.

Fréttir
- Auglýsing -