Þór lagði Tindastól fyrr í kvöld með 94 stigum gegn 93 í oddaleik um sæti í undanúrslitum Dominos deildar karla. Þar sem að ÍR sigraði oddaleik sinn einnig gegn Njarðvík fer það svo að Þór mætir KR í næstu umferð, en Tindastóll eru komnir í sumarfrí.
Karfan spjallaði við leikmann Þórs, Halldór Garðar Hermannsson, eftir leik í Síkinu.