Hilmir Hallgrímsson, leikmaður Vestra og U-16 landsliðsins, gerði sér lítið fyrir og skoraði 52 stig á móti KR-b í leik liðanna í drengjaflokki í DHL-höllinni á laugardaginn.
Vestri hafði frumkvæðið í leiknum frá byrjun og leiddu í hálfleik 49-50 en leikurinn endaði 89-108 Vestra í vil.
Hilmir spilar einnig með meistaraflokki Vestra í 1. deildinni þrátt fyrir ungan aldur en þar er hann með 4,3 stig á um 16 mínútum að meðaltali í 21 leik.
Mynd: Anna Ingimars