Valur sótti tvö mikilvæg stig í Ljónagryfjuna í kvöld með 74-77 sigri á Njarðvík. Lokaspretturinn var æsispennandi en tilraunir Njarðvíkinga voru „stöngin út“ þegar mest á reyndi. Kiana Johnson fór mikinn hjá Val með 29 stig, 7 fráköst og 8 stoðsendingar en hjá Njarðvíkingum var Raquel Laneiro stigahæst með 22 stig, 6 fráköst og 3 stoðsendingar.
Karfan spjallaði við Isabellu Ósk Sigurðardóttur leikmann Njarðvíkur eftir leik í Ljónagryfjunni.