Lykilleikmaður 14. umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður Hauka, Þóra Kristín Jónsdóttir. Á tæpum 38 mínútum spiluðum í mikilvægum 72-69 sigri á Skallagrím skilaði Þóra laglegri þrennu, 13 stigum, 11 fráköstum og 11 stoðsendingum.
Aðrar tilnefndar voru leikmaður KR, Kiana Johnson, leikmaður Stjörnunnar, Danielle Rodriguez og leikmaður Vals, Helena Sverrisdóttir.
Lykilleikmaður 14. umferðar Dominos deildar kvenna? #korfubolti
— Karfan (@Karfan_is) January 6, 2019