Martin Hermannsson og Valencia unnu í kvöld UCAM Murcia í ACB deildinni á Spáni, 89-78. Valencia eftir leikinn í 8. sæti deildarinnar með átta sigra og sex tapaða það sem af er tímabili.
Á rétt tæpum 13 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 5 stigum, frákasti, 4 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Næsti leikur Valencia í deildinni er gegn Acunsa GBC þann 27. desember.