spot_img
HomeFréttirSólrún setti niður fimm þrista í sigri Mariners á Ave Maria Gyrenes

Sólrún setti niður fimm þrista í sigri Mariners á Ave Maria Gyrenes

Sólrún Inga Gísladóttir og Coastal Georgia Mariners unnu í gær góðan endurkomusigur á Ave Maria Gyrenes í bandaríska háskólaboltanum, 78-59. Það sem af er tímabili hafa Mariners unnið 5 leiki og tapað 3.

Á 33 mínútum spiluðum skilaði Sólrún 17 stigum, 4 fráköstum og 2 stoðsendingum, en hún setti niður 5 þriggja stiga skot í leiknum.

Næst mæta Mariners liði Georgia Southern komandi laugardag 12. desember.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -