Véfréttin fékk þá Davíð Eld og Tómas Steindórsson í sóttvarinn Hljómskálann til þess að ræða nýjustu vendingar í körfuboltaheiminum.
Farið var yfir þriggja leikja bannið sem leikmaður Njarðvíkur fékk, tékkað aðeins á stöðunni hjá Þóri í Nebraska, 1. deild karla skoðuð sem og úrslitin í NBA og hvernig til tókst með búbbluna.
…og margt, margt fleira.
Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.