Einn leikur fór fram í dag í fyrstu deild kvenna.
B lið Fjölnis lagði Vestra í annað skiptið á jafn mörgum dögum. Eftir leikinn er Fjölnir með tvo sigra og tvö töp í fyrstu fjórum leikjum sínum á meðan að Vestri er með einn sigur og þrjú töp.
Þá voru tveir leikir í annarri deild karla.
ÍA lagði B lið Vals með 6 stigum á Akranesi, 99-93. Þá kjöldróg Leiknir Reykjavík B lið Tindastóls í Kennaraháskólanum, 117-66.
Úrslit dagsins
Fyrsta deild kvenna:
Fjölnir B 77 – 41 Vestri
Önnur deild karla:
ÍA 99 – 93 Valur B
Leiknir 117 – 66 Tindastóll B