Aukasendingin fékk formann KKÍ Hannes Jónsson í spjall um þá ákvörðun Afrekssjóðs og ÍSÍ að færa sambandið niður í B flokk afrekssambanda og þá tilveruógn sem ákvörðunin hefur í för með sér, en ekki er víst að Ísland nái að senda A landslið í fyrstu leiki nýrra verkefna seinna á árinu ef ekkert verður aðhafst.
Þá fer seinni hluti spjallsins í að ræða Körfuknattleiksþing 2023 sem fram fer þann 25. mars næstkomandi.
Dagskrá:
00:00 – 26:00 Ákvörðun ÍSÍ og Afrekssjóðs
26:00 – 40:00 Körfuknattleiksþing 2023
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway.