Körfuknattleiksáhugafólk hoppar hæð sína í dag þar sem tilkynnt var að spænska úrvalsdeildin verði í beinni á Stöð 2 Sport í allan vetur.
Tilkynningu Stöðvar 2 Sport má finna hér að neðan:
Stöð 2 Sport hefur tryggt sér sýningarréttinn að leikjum ACB, efstu deildinni í körfubolta á Spáni. Um er að ræða eina sterkustu deildarkeppni heims í körfubolta, með mörgum af sterkustu og sögufrægustu liðum Evrópu. Nægir þar að nefna íþróttastórveldin Real Madrid og Barcelona.
Þrír lykilmenn íslenska landsliðsins leika með spænskum félagsliðum. Martin Hermannsson (Valencia) og Haukur Helgi Pálsson (Andorra) eru að hefja sínar fyrstu leiktíðir í ACB-deildinnni og Tryggvi Snær Hlinason hefur senn sitt fimmta keppnistímabil á Spáni og annað með núverandi liði sínu, Zaragoza.
Stöð 2 Sport sýnir frá hverri umferð deildarkeppninnar og gerir úrslitakeppninni í vor ítarleg skil. Þá verður einnig sýnt frá bikarkeppninni (Copa del Rey) og ofurbikarnum (Supercopa) sem fer fram helgina 12.-13. september næstkomandi. Stöð 2 Sport mun reglulega sýna frá leikjum liða íslensku leikmannanna.
Antonio Martin, forseti ACB:
„Íslenskur körfubolti hefur þróast á jákvæðan máta síðustu árin og sönnun þess er tilkoma áhugaverðra leikmanna eins og [Martins] Hermannssonar, [Tryggva Snæs] Hlinasonar og [Hauks Helga] Pálssonar. Allir munu hafa mikilvægu hlutverki að gegna í sínum liðum og sýna hversu langt íslenskur körfubolti hefur náð.
Við erum ánægð að með samstarfi okkar við Stöð 2 Sport muni íslenskir aðdáendur fá tækifæri til að fylgjast með leikjum ACB deildarinnar. Við erum þess fullviss að þeir muni njóta bæði keppninnar og frammistöðu leikmannanna til hins ítrasta.“
Eiríkur Stefán Ásgeirsson, forstöðumaður Stöðvar 2 Sports:
„Það er okkur á Stöð 2 Sport mikið ánægjuefni að gefa íþróttaáhugafólki á Íslandi tækifæri að fylgjast með þremur af sterkustu körfuboltamönnum landsins reyna fyrir sér í einni sterkustu deild Evrópu. Afrek þeirra Martins, Hauks Helga og Tryggva Snæs er mikið og það eru forréttindi að fá að fylgja þeim eftir í vetur.
Stöð 2 Sport hefur sýnt frá íslenskum körfubolta síðustu áratugi og ríkir sérstök ánægja með þessa viðbót á dagskrá íþróttastöðva okkar.“
Martin Hermannsson:
„Þetta eru fyrst og fremst frábærar fréttir fyrir körfuboltann á Íslandi. Nú fá krakkarnir á Íslandi tækifæri til að horfa á sínar fyrirmyndir í sjónvarpinu sem hefur í raun aldrei verið raunin fyrir körfuboltakrakka á Íslandi. Ég vildi óska þess að ég hefði haft tök á að horfa á Jón Arnór þegar hann var upp á sitt besta.
Þetta á líka eftir að hjálpa okkur körfuboltamönnunum að koma okkur betur á framfæri og opna augu Íslendinga fyrir því hversu stór körfubolti er á Spáni og í Evrópu.“
Haukur Helgi Pálsson:
„Þetta eru frábærar fréttir! Loksins verður sýnt frá bestu deild Evrópu og ekki skemmir fyrir að þar eru þrír Íslendingar að spila. Gaman að körfuboltafólk á Íslandi fær að kynnast evrópskum körfubolta enn betur. Virkilega góðar fréttir! Ég veit að fjölskyldan heima verður ánægð með þetta.“
Tryggvi Snær Hlinason:
„Það er magnað að Íslendingar geti loksins horf á evrópskan körfubolta í beinni útsendingu í sjónvarpinu. Ég veit strax að margir heima verða glaðir með þetta framtak og ég held að þetta sé gott skref fyrir körfuboltahreyfinguna í heild. Það er svo ekkert annað að segja en sjáumst í vetur!“