spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaBríet Sif og Elísabeth Ýr til Hauka

Bríet Sif og Elísabeth Ýr til Hauka

Bríet Sif Hinriksdóttir og Elísabeth Ýr Ægisdóttir hafa ákveðið að ganga til liðs við Hauka og munu taka slaginn með liðinu í Domino‘s deild kvenna í körfubolta á næstu leiktíð. Báðar léku þær með Grindavík á síðustu leiktíð.


Bríet Sif hefur leikið með Keflavík, Stjörnunni og síðast Grindavík í efstu deild kvenna og kemur því inn í Haukaliðið með ákveðna reynslu. Hún var að skila tæpum 13 stigum og fimm fráköstum í leik á síðasta ári með Grindavík.


Bríet segist vera spennt fyrir komandi tímabili og að Haukar ætli sér stóra hluti í vetur. „Mér lýst svaka vel á næsta tímabil, þetta er mjög góður hópur með fullt af sterkum leikmönnum. Mjög spennandi og vonandi get ég lagt mitt af mörkum til að styrkja liðið. Haukar er flottur klúbbur sem ætla sér stóra hluti og ég er mjög spennt fyrir að taka slaginn með þeim í vetur.“


Elísabeth Ýr er einn besti ungi leikmaðurinn í deildinni en hún er fædd 2003 og er því aðeins 17 ára. Hún var að skila 6 stigum og 5 fráköstum á þeim mínútum sem hún spilaði með Grindavík á síðustu leiktíð.


„Ég er mjög spennt fyrir næsta tímabili og ánægð með að vera komin til Hauka. Ég er tilbúin að leggja mig fram og bæta mig sem leikmann og vonandi nýtist ég liðinu vel,“ sagði Elísabeth þegar hún var spurð hvernig henni litist á vistaskiptin.


Aðspurður sagði Bjarni Magnússon, þjálfari liðsins, að hann og Ingvar Guðjónsson, aðstoðarþjálfari, væru mjög ánægðir með að Elísabeth og Bríet ákváðu að skipta yfir í Hauka og að þær komi til með að gera gott lið enn betra. „Elísabeth er ein af efnilegustu leikmönnum landsins og stóð hún sig mjög vel á sínu fyrsta ári í Domino‘s deildinni á síðasta tímabili og sýndi að hún á klárlega að spila í efstu deild. Hún er með ákveðna eiginleika sem eiga eftir að nýtast okkur vel og erum við spenntir að fá að vinna með henni á næsta tímabili.“


„Bríet er náttúrlega þekkt stærð enda búin að spila í deildinni einhver 7-8 ár að mig minnir. Hún hefur verið í stóru hlutverki í sínum liðum síðastliðin 4 tímabil og verið ein af stigahæstu íslensku leikmönnum deildarinnar, enda frábær skotmaður. Og sama og með Elísubeth þá er Bríet með ákveðna styrkleika sem við töldum að okkur vantaði og því mjög ánægulegt að hún hafi tekið þessa ákvörðun“ sagði Bjarni um leikmennina tvo. Haukar hafa misst nokkra leikmenn úr hópnum frá því á síðasta tímabili sem hafa annað hvort ákveðið að hvíla eða eru á leiðinni utan í skóla. Bjarni sagði að með tilkomu þessara leikmanna sem gengið hafa til liðs við Hauka í sumar séu þau skörð fyllt sem leikmennirnir skilja eftir sig. „Eftir að hafa misst nokkra leikmenn frá okkur frá síðastliðnu tímabili þá lá fyrir að við þyrftum að reyna að ná í leikmenn til fylla þeirra skörð. Með komu þessar tveggja leikmanna og Irenu Sól sem gekk til liðs við okkur fyrr í sumar þá tel ég að við höfum gert vel í því að fylla þessi skörð og fer því ánægður inn í stutt sumarfrí.“


Bragi Magnússon, formaður kkd. Hauka, segir að það sé mikil gleði að taka á móti þessum góðu leikmönnum í Hauka. „Bríet er frábær leikmaður og á eftir að koma með skemmtilega vídd í leik liðsins og Elísabeth er einn besti ungi leikmaðurinn á landinu í dag og vonandi getum við búið til umhverfi fyrir hana til að blómstra í. Ég býð þær báðar velkomnar í Hauka.“

Fréttir
- Auglýsing -