Aukasendingin kom saman og fór yfir hvernig lið Dominos deildar karla og kvenna líta út fyrir tímabilið sem fer af stað í lok ágúst. Samkvæmt reglu var sett saman kraftröðun fyrir öll lið beggja deilda, þar sem þau voru metin eftir þeirri stað sem þau eru á í dag.
Kvennamegin virðast Valur og Skallagrímur vera í nokkrum sérflokki í efstu sætum, á meðan að KR tekur mikla dýfu og eru nú í neðsta sætinu. Karlamegin er allt í lás í efstu sætunum, þar sem að Keflavík, Stjarnan og Tindastóll eru, á meðan að Þór Akureyri, Höttur og Þór Þorlákshöfn eru við botninn.
Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.
Umsjón: Davíð Eldur, Ólafur Þór og Bryndís
Dagskrá:
Létt hjal – 00:00
Dominos deild kvenna – 03:50
Dominos deild karla – 39:30