Framherjinn efnilegi Jóhanna Lilja Pálsdóttir hefur framlengt samning sínum við Njarðvík um tvö ár.
Var Jóhanna einn af lykilleikmönnum Njarðvíkur á síðasta tímabili í fyrstu deild kvenna þegar hún skilaði 11 stigum, 4 fráköstum og stoðsendingu að meðaltali í 22 leikjum fyrir félagið.